facebook-pixel

Flutningsþrif

Flutningsþrif með ábyrgð – 100% fullkomin og áreiðanleg þjónusta

Þrif eftir flutning eru nauðsynleg þjónusta fyrir þá sem eru að flytja út eða inn í húsnæði. Við bjóðum upp á faglega
djúphreinsandi og ódýra hreingerningu í Reykjavík og nágrenni, fyrir einstaklinga, leigjendur og fasteignafélög.
Ef þú ert að leita að hreingerningu eftir flutning í Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Mosfellsbær eða Garðabær – þá ertu á réttum stað.
Við veitum ábyrgðarfulla ræstingarþjónustu við flutning með verð sem hentar öllum.
Þjónustan okkar er sniðin að þörfum þínum – fljótleg, árangursrík og á góðu verði

Hvað innifelur flutningshreingerning?

Flutningsþrif af hæsta gæðaflokki

Flutningsþrif sem standast úttekt – með 100% ánægju tryggingu. – þau snúast um að skila eign í fullkomnu ástandi. Við vinnum af nákvæmni og fagmennsku þar sem hvert rými er yfirfarið í smæstu smáatriðum. Markmið okkar er að eignin standist úttekt án athugasemda.

Við hreinsum eldhúsið í heild sinni, fjarlægjum fitu og óhreinindi og tryggjum að ofn, helluborð, vifta og ísskápur séu tandurhrein að innan sem utan. Allir skápar og skúffur eru þrifnir vandlega svo ekkert ryk eða blettir sitji eftir.

Baðherbergi eru djúphreinsuð með sérstakri áherslu á flísar, sturtusvæði, salerni og blöndunartæki svo allt glansi af hreinleika. Við förum einnig yfir hurðir, lista, glugga og gólf þannig að hvert horn og hvert smáatriði sé hreinsað af alúð.

Markmið okkar er einfalt – að þú getir afhent eignina með fullu öryggi og án áhyggna. Hjá okkur er ekkert gert hálfklárað – aðeins fullkomið hreinlæti og fagleg vinnubrögð sem þú getur treyst.

Við bjóðum upp á heimilisþrif þegar þú flytur í Reykjavík og nágrenni.

Ef eitthvað vantar eftir úttekt komum við aftur og klárum verkið án aukakostnaðar.


 

 
 

Verðskrá fyrir hreingerningu við flutning

verðVerð eftir 20% afslátt
0 – 10056250 kr45000 kr
100 – 12563750 kr51000 kr
125 – 15071250 kr57000 kr
150 – 17578750 kr63000 kr
175 – 20086250 kr69000 kr
200 – 22593750 kr75000 kr
225 – 250101250 kr81000 kr
250 – 275108750 kr87000 kr
275 – 300116250 kr93000 kr
Öll verð eru með VSK innifalinn.

Fylltu út formið og við svörum eins fljótt og auðið

Hafa samband

Þjónustutími

Staðsetning